Leiklist og leikir
  • Velkomin
  • Leiklist
  • Leikir
  • Hæfniviðmið og Aðalnámskrá
  • Fræðsluefni
  • Um okkur

Um höfunda

​Hildur Erlingsdóttir er 23 ára þriðja árs nemi í kennaranámi í Háskóla Íslands með áherslu á yngri barna kennslu. Með náminu starfar hún í grunnskóla í Hafnarfirði, bæði í félagsmiðstöðinni á kvöldin fyrir unglinga og í afleysingakennslu á daginn. Hún hefur mikla reynslu af starfi með börnum og unglingum og hefur unnið sem skólaliði, frístundaleiðbeinandi, flokkstjóri í unglingavinnu, afleysingakennari og tómstundaleiðbeinandi. 
Picture

Kristín Snæfríður Sigurðardóttir er 25 ára nemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og er á þriðja ári í grunnskólakennslu yngi barna. Samhliða náminu starfar hún sem stuðningsfulltrúi og stefnir á að byrja að kenna að loknu grunnnámi ásamt því að byrja í framhaldsnámi. Kristín hefur mikla reynslu að vinna með börnum á öllum aldri og hefur hún starfað í leikskóla, frístund, þjálfað listskauta og verið flokkstjóri í unglingavinnu. Leikur og leiklist var alltaf stór hluti af hennar lífi sem barn og unglingur og tók hún þátt í leiklistaræfingum í gegnum listskauta til að bæta framkomu sína á ísnum.   
Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Velkomin
  • Leiklist
  • Leikir
  • Hæfniviðmið og Aðalnámskrá
  • Fræðsluefni
  • Um okkur