Leiklist og leikir
  • Velkomin
  • Leiklist
  • Leikir
  • Hæfniviðmið og Aðalnámskrá
  • Fræðsluefni
  • Um okkur

Leiklist í skólastarfi

Hér verður farið yfir nokkrar leiklistaraðferðir sem hægt er að nota í kennslu, 
Hugmyndirnar um leiklist koma víðsvegar frá, meðal annars úr bókinni Leikum af list eftir Rannveigu Björk Þorkelsdóttir og Jónu Guðrúnu Jónsdóttir (2021). Einnig koma fram aðferðir sem við höfum lært í námi og starfi.
​

Leiklist í kennslu
​

Hljóðleikhús
Fjöldi nemenda: Nemendur vinna saman í minni hópum t.d. 4-6 saman í hóp.
Ferlið: Kennari býr til sögu fyrir/með nemendum eða notar tilbúnar sögur sem hægt er að finna á mms.is Einng geta nemendur búið til sína eigin sögu með leiðsögn kennara, þannig er hægt að tengja hljóðleikhús inn í hvaða námsgrein sem er. 
Nemendur fá hlutverk í sögunni sem þeir leika, allir hjálpast að við að búa til hljóð og hreyfingar þar sem það á við. Gefa þarf nemendum tíma til að æfa sig áður en hljóðleikhúsið er tekið upp.

Þegar sagan er lesin þurfa nemendur að skilja um hvað sagan er, hvar er hægt að gera hljóð og hvað þetta ♪ merki þýðir þegar það er inni í sögu.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra að taka eftir og hlusta, það er mikil sköpun við uppsetningu á hljóðleikhúsi og nemendur þurfa að nota ímyndunarfl sitt. Nemendur efla samvinnu og læra að setja sig í spor annarra.

Picture
(Mizkit. e.d., mynd 1)
Slóð á mms

Hljóðleikhús
​mms
Sagan um Haka og Gumpu
​
Haki og gumpa
​

Látbragð 
Fjöldi nemenda: Allir í bekknum taka þátt.
Ferli: Nemendur fá úthlutað hlutverk frá kennara sem þau þurfa að túlka með látbragði án þess að nota orð og hljóð.
Dæmi: Bekkurinn er að læra um dýr og kennarinn segir þeim sögu þar sem fram kemur að kýr gengur um túnið og borðar gras, nemendur leika kúna.

Hvað læra nemendur: Nemendur læra að túlka það sem þau heyra, sýna fram á þekkingu á dýrum og leita lausna hvernig á að framkvæma látbragð án þess að nota hljóð og orð. ​
Picture
(Cute Kid Characters Wearing Animal Costumes Vector Illustration Set, e.d., mynd 2)

Látbragð og hljóð
Fjöldi nemenda:
Allir í bekknum og minni hópar 4-6 saman.
Ferli: ​Nemendur leika eftir tillögum kennara með hljóðum, hægt er að nota þessa aðferð til að skipta nemendum upp í minni hópa. 
Nemendur draga miða upp úr hatti, á miðanum er ákveðið dýr. Til þess að nemendur finni hópfélaga sína eiga þau að leika dýrið og gefa frá sér viðeigandi hljóð. Þegar nemendur eru komnir í hóp fá þau tillögu frá kennara sem þau eiga að leika.
Dæmi: Nemendur eru að læra um risaeðlur og eiga að leika ákveðna tegund og ákveða í sameiningu hvaða hljóð risaeðlan gefur frá sér. Kennari segir: „Þið eruð flugeðlur, núna þurfa nemendur að vinna saman og finna út hvernig þau geta leikið flugeðlu!"
​Hvað læra nemendur: Nemendur læra að vinna saman, samskipti og tjáningu, þau efla skapandi hugsun og hlustun.
Picture
(Children playing monkey with friends illustration, e.d., mynd 3)

Atburðarás
Fjöldi nemenda: Nemendur mynda smærri hópa en allir í bekknum taka þátt, 2-6 saman í hóp.
Ferli: Kennari les sögu fyrir bekkinn t.d. Búkollu og nemendur búa til spuna eða kyrrmynd út frá atburðarás sögunnar.
Dæmi: Hvað er Búkolla að gera á meðan hún er týnd? Hittir hún fólk eða önnur dýr? Hvernig samræður eiga sér stað?
Hvað læra nemendur: ​Nemendur læra samvinnu, samskipti, setja sig í spor annarra og hlustun.  
​

Picture
(Cristian Lungu, 2021, mynd 4)

Að leika setningu
Fjöldi nemenda: Allir í bekknum taka þátt en tveir nemendur leika í einu.
Ferli: Nemendur eru tveir saman, búa til setningu og segja kennaranum setninguna, kennarinn skrifar setninguna upp á töflu og nemendur leika setninguna fyrir bekkinn.

Dæmi: „Amma sá mús" (einn nemandi er amma og hinn er mús). Þessi aðferð hentar vel fyrir nemendur í 1. og 2. bekk sem eru að læra um setningar og hvernig þær eru myndaðar.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra samvinnu, samskipti og áhorf.​​
Picture
(Nicole Taionescu, 2021, mynd 5)

Hlutverkaleikur
Fjöldi nemenda: Allir taka þátt.
Ferli: Nemendur setja sig í önnur hlutverk t.d. bakari, læknir, smiður, kennari eða rokkstjarna, kennarinn gefur nemendum þessi hlutverk og veitir þeim aðstoð ef þeir þurfa. Kennari segir við hópinn núna ætla allir að hegða sér eins og prinsessa.
Dæmi: Nemendur eru að læra um sveitina og kennarinn les sögu um öll þau verkefni sem þarf að gera í sveitinni. Nemendur þurfa að fara í hlutverk, bónda, vinnumanns og vinnukonu, sumir leika dýrin á bænum. 

Hvað læra nemendur: Að setja sig í spor annarra, samvinnu, samskipti og tillitsemi 

Picture
(Onyxprj, e.d., mynd 6)

Spuni
Fjöldi nemenda: 
Allir taka þátt
Ferli: Spuni er hlutverkaleikur, þar sem nemendur þurfa að setja sig í hlutverk annarra hér og nú, kennari gefur nemendum ákveðinn ramma (þarf ekki alltaf að vera) t.d. staður, persóna og/eða vandamál sem nemendur þurfa að leysa.
Dæmi: Nemendur þurfa að búa til framhald af Litlu gulu hænunni.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra að setja sig í spor annarra, vera fljót að hugsa og leysa vandamál á staðnum.
​
Picture
(„ótitluð mynd af yes and”, e.d., mynd 7)

Sérfræðingskápan
​Fjöldi nemenda: 4-5 saman í hóp.
Ferli: Nemendur eru sérfræðingar í því námsefni sem unnið er með t.d. líkaminn eða sjóræningjar.
Dæmi: Nemendur eru að læra um plánetur og læra þá allt um ákveðna plánetu sem kynna síðan fyrir bekknum. Kennarinn er í hlutverki og spyr nemendur út í plánetuna einnig geta nemendur spurt spurninga.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra að afla sér upplýsinga, kynna þær upplýsingar og vinna saman.
​​
Picture
(Lordalea, 2009, mynd 8)

Skapandi skrif eða ljóð
​Fjöldi nemenda:
 Allir nemendur vinna saman.
Ferli: Nemendur búa til ljóð eða sögu út frá viðfangsefni sem er unnið með, t.d. árstíðirnar.
Dæmi: Kennari biður nemendur um að segja eitt orð sem þau tengja við árstíðina sem lært er um, einn nemandi segir í einu og að lokum er komið ljóð eða smá saga sem nemendur bjuggu til. Einnig geta nemendur bætt við hreyfingu fyrir orðin þegar ljóðið er lesið upp.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra samvinnu, hlustun, samskipti og sköpun.
Picture
(„ótitluð mynd af stúlku”, e.d., mynd 9)

Hugsa/ræða/deila
Fjöldi nemenda: 
Allir í bekknum taka þátt.
Ferli: Fyrst kemur nemandi 1 og hugsar um viðfangsefnið sem kennarinn er að segja frá, síðan með félaga ræða þeir um efnið og að lokum deila þeir með bekknum það sem rætt var.
Dæmi: Nemendur eru að læra um sjálfbærni og biður kennarinn nemendur um að hugsa um flokkun og hvað er skólinn að gera til að flokka og hvað nemendurnir geta gert. Nemendur ræða saman í pörum og kynna að lokum niðurstöður frá samtalinu.
Hvað læra nemendur: Nemendur læra samskipti, sjálfstæða hugsun og samvinnu.
Picture
(„ótitluð mynd af think, pair, share”, e.d., mynd 10)
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Velkomin
  • Leiklist
  • Leikir
  • Hæfniviðmið og Aðalnámskrá
  • Fræðsluefni
  • Um okkur