um síðuna
Þessi vefsíða er lokaverkefni til B.Ed gráðu í grunnskólakennslu yngri barna við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hugsunin á bak við síðuna er að veita kennurum aðgengilegt leiklistarefni til að nota í kennslu. Einnig er hér að finna leiki sem skemmtilegt er að nota í skólastarfi eða sem kveikju í kennslustund, jafnvel til að brjóta upp daginn. Þær leiklistaraðferðir og leikir sem við leggjum áherslu á, eiga að virka í skólastofunni jafnt sem úti. Á síðunni er að finna níu leiklistaraðferðir og síðan eru 18 hugmyndir að leikjum. Hugmyndirnar koma frá mörgum ólíkum stöðum, bæði frá okkar eigin reynslu í námi, starfi, af netinu og í bókum.
Hér er einnig hægt að finna fræðsluefni um leiklist og leiki og við fjöllum um af hverju það er gagnlegt að nota leiklist og leiki í kennslu. Síðan verður stuttlega sagt frá Aðalnámskrá grunnskóla og hvað hún segir um leiklist. Neðst undir fræðsluefni er hægt að finna áhugavert efni um leiklist og leiki sem okkur finnst vert að nefna og hjálpaði okkur með gerð þessarar síðu.
Báðar höfum við góða reynslu af leiklist og leikjum úr okkar grunnskólagöngu og er það helsta ástæðan fyrir því af hverju við bjuggum til þessa síðu. Okkur finnst mjög gaman að nýta list og sköpun í námi og starfi sem býður upp á fjölbreyttar aðferðir til að læra og er það okkar reynsla að leiklist og leikir eru skemmtilegir og gagnlegir í kennslustofunni. Við fengum að upplifa leiklist og notkun leikja á okkar grunnskólagöngu og höfðum einstaklega gaman af því, vonum við að kennarar nýti sér aðferðir leiklistar og leikja í kennslu svo aðrir nemendur fá að upplifa slíkt hið sama.